GB

hvað veit ég??

27.07.2008 18:00:22 / sandholt

Nafnið mitt.

Gunnar
Merkir bardagamaður. Algegnt nafn á Íslandi frá landnámsöld.
Gunnar er feiminn og hæglátur maður. Hann á auðvelt með að læra og þykir gaman að takast á við ný verkefni. Hann útskrifast aldrei úr skóla lífsins.

Birgir
Sá sem bjargar eða verndar. Nafnið Birgir hefur tíðkast á Íslandi síðan á 13. öld.
Birgir er glæsilegur og göfuglyndur. Honum er annt um meðbræður sína og fólk laðast gjarnan að honum. Hann er gæddur mörgum góðum hæfileikum og býr yfir skörpu innsæi í peningamálum.

og dæmið svo hvort þetta sé rétt eður ei.

kv. GB


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 20:00:07 / sandholt

Ekki alveg eins og ég planaði

ég er að fá bíl núna eftir helgi, loksins segja sumir.

nýja vinnan er frábær og fíla ég hana í botn. þetta er reyndar vakta vinna en það þíðir bara að ég get sofið út aðra hverja viku. ég er sem sagt að vinna frá 07.30 til 15.30 mán til fös eina vikuna og svo frá 15.30 til 01.00 mán til mið og 15.30 til 00.00 fim og frí á fös. nema þegar það er mikið að gera þá er smá yfirvinna til 03.00.
það sem ég er að gera í þessari vinnu er að taka sýni og athuga hvort það er ekki innan marka. t.d. kolsýra, hlutfall sýróps og vatns í gosinu. bjórinn er soldið meira mál því þá þarf ég að athuga súrefni og kolsýru á hverjum degi en svo er margt annað eins og SO2 mæling, VDK, froða, Haze og fleirra. einnig eru örverumælingar og að sjálfsögðu smökkun, þar sem ég þafr að smakka allt sem er framleitt.

hef ekki mikið meira að segja alveg strax...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 20:33:05 / sandholt

Sumar

þá er maður búinn í prófum og nýtur þessa að gera sem minnst gagn. en það varir ekki lengi því ný vinna byrjar á mánudaginn. það heppna fyrirtæki er Ölgerðin og verð ég að vinna á ransóknarstofunni þar. æfingar eru líka byrjaðar á fullu og er öklinn allur að koma. hann er samt soldið stífur og kraftlaus en ég er bjartsýnn á að það lagist með tímanum.
planið í sumar verður þá að vinna, æfa, og drekka bjór. gott plan.
skál.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 12:54:48 / sandholt

Voltaren Rapid

þá er maður búinn í speigluninni og gékk það hún vel. læknirinn sagði að þetta hafa verið meira en hann bjóst við og fjarlægði hann fersentimeter af bólgu viðbjóð undir innri kúlunni og boraði smá í hana til að örva blóðflæði. þannig að ég má lítið stiga í löppina næstu daga og engan bolta spila í mánuð. það er svo sem allt í lagi þar sem tímabilið er búið og ég í próf hugsunum þessadagana, enda fyrsta loka prófið 3 apríl. og er ég búinn 13. maí. sem er mjög gott.
ég er ekki enþá kominn með sumarvinnu en þetta er allt í góðu fari.
ég er að gera skýrslu um neytendakönnun sem við í skynmatinu gerðum fyrir páska á nýju bygg brauði sem gæti komið á markað.
NCAA er í fullum gangi og er ég að horfa á það á netinu sem er alger snilld. ncaa.com tjekkið á því.
fyrir aðgerðina átti ég að fasta sem er ekki svo slæmt þar sem húna átti að vera klukkan níu að morgni þá, en þá var hringt í mig og hún frestuð til eitt og svo smá bið eftir að. þetta er náttla ekki hvítum manni bjóðandi að svelta mann svona lengi. 18 tímar er ekki boðlegt fyrir mann í matvælafræði að vera án matar. á meðan sumt fólk borðar til að lifa þá lifi ég til að borða. ég var farinn að verða máttlaus og þreyttur. samt búinn að sofa lengi og í þokkalegu formi miðað við aldur og fyrri störf. ég skil ekki hvernig fólk getur fastað dögunum saman. ég er orðinn svangur á þessu tali, ég er farinn að fá mér að borða...


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 18:56:40 / sandholt

6 mánuðir í dag...

ég var í starfsviltali hjá ölgerðinni um hugsanlegt sumarstarf á rannsóknarstofunni við að títra bjór. sem er kannski soldið ánægulegt fyrir þær sakir að þetta yrði fyrsta matvælafræðivinnan mín og fyrir utan hrifningu mína á bjór.
ég er að bíða eftir hringingu frá lækninum mínum svo við getum dagsett speiglununa mína. loksins verið að gera eitthvað í þessu helvíti. get ég kannski byrjað að æfa eftir prófin.
ég verð að fara að skrifa pælingarnar mínar þegar mér drettur þær í hug því alltaf þegar ég opna þetta þá dettur mér ekkert sniðgt í hug.
gæti jú talað um umferðina og útlendinga mál á íslandi. en er að pæla að tala um hreinlæti.
það koma upp á tal í klefanum um daginn að strákarnir eru ekki mjög hreinlegir hvað kemur að að þrífa heimilið sitt. þeir sögðu t.d. að þeir þrifu ekki pönnuna eftir notkun og létu hana bara bíða til næsta kvölds þvi þeir þirftu hvort eð er að nota hana aftur þá. svo eru þeir ekki mikið fyrir ryksugur og að þurka af. einnig ganga þeir ekki frá fötunum sínum heldur henda þeir þeim frá sér í hrígu án þessa að slétt úr þeim. þetta finnst mér bara vera sóðaskapur og viðbjóðslegt. hreinlæti er lykilatriði að góðri heilsu og góðri líðan tala nú ekku um sýkingar hættu sem fyrlgir óhreinundum, sýklar þrífast á rökum og skítugum stöðum þar sem nóg er af æti. þar fjölda þeir sér og berast í mat og húsgögn. það laðar að sér stærri dýr eins og pöddur og skordýr. sem er einmitt eitthvað sem fólk hefur ekkert sérstaklega mikin áhuga á að hafa sem húsdýr. já talandi um húsdýr þá eru þau ógeðsleg og ekkert nema óhreinindi og leiðindi í kringum þau. en ég ætla ekki út í þá sálma núna. þess vegna er fátt þæginlegra en eð slappa af í hreinu umhverfi með bjór í hönd og handa að sér heirnu lofti....



» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 21:48:20 / sandholt

gott líf...

það er víst kominn tími á nýja færslu fyrst það koma enþá svona margir hingað inn.

það sem er að frétta af mér er að ég er að fara í endurteknapróf á morgun í lífenfafræði 1.

ökklinn er ekki enþá kominn í lag, en það er í vinnslu, er hjá sjúkraþjálfara og fer í myndatöku 5 feb. 

tölvan mín dó rétt eftir jól og þarf ég að fara að kaupa mér nýja eftir helgi. ómögulegt að vera tölvulaus, þetta er eins og að missa hluta af sjálfum sér.

ótrúlegt segja sumir en satt þá gengur bíllinn minn enþá.

ég náði þrem af fjórum prófum um jólin, 7 í efnafræði, 8.5 í tölfræði og 5 í eðlisefnafræði sem ég hélt að ég væri sko búinn að skítfalla í.

ég er orðinn 25 ára.  scary...

bjór er bestur.

ég er að fá nóg af þessum snjó.

gott að búa í hafnarfirði þegar allt er í volli í reykjavíkinni.(bý samt meira í rkv en í hfj).

það er ekki mikið meira að frétta af mér þessa dagana.

og er ég að pæla í því að skrifa meira þegar ég fæ nýju tölvuna mína.

 

GB 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 11:10:06 / sandholt

nörd


I am nerdier than 56% of all people. Are you a nerd? Click here to find out!

 

mér er enþá íllt í ökklanum

ég er búinn að fá borgað frá dómó

við unnum hött með 4

októberfest var skemmtileg

leikur við reyni í sandgerði á laug

bíllinn gegnur enþá

tölvan gegnur líka enþá

og lífið er bara gott...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 17:52:48 / sandholt

95% góð helgi

nóg var að gera síðustu helgi og var hún vel heppnuð að mestu leiti...

helgin byrjaði á fimmtudaginn þegar við hauka pjakkar fórum til sandgerðis að spila við grindavík í reykjanesmótinu. best að segja sem fæst orðu um þann leik því við töðuðum honum 66-110.

ég er með það góða stundatöflu að hafa enga tíma á föstudögum, ég hafði það nú samt í mér að mæta aðeins og læra smá. ég hafði nú samt ekkert svaka mikinn tíma því ég var skráður til leiks í Tandur not open. sem er gólfmót í fyrirtækinu sem ég vinn í og er leikið með texas scramble fyrirkomulagi. þetta var fínasta skemmtun og vantaði mig og meðspilara mínum aðeins eitt högg í sigurinn. það eitt og sér er ekki svo slæmt en að það hafi verið bróðir minn sem vann var hins vegar verra.

þess má geta að ég sleppti leik við njarðvík til þessa að stunda þessa skemmtun en líkt og leikurinn kvöldið áður þá var hann ekki uppá marga fiska.

eftir gólfmótið var snæddur þessi fínu matur og rauðvín. fólkið var nú ekki að staldra lengi við þannig að ég bauð mér bara í staðinn í efnafræðipartý hjá binna gjaldkera sem býr á studentagörðunum. eins og flestar íbúðir þar eru þær ekki stórar en ætli það hafi nú samt ekki komist hátt í 30 manns þar þetta kvöld.

á laugadaginn var leikur við reyni sandgerði í grindavík. við unnum þann leik þrátt fyrir að hafa ekki spilað neitt svakalega vel. strax eftir leik var haldið á chris cornell og demn hvað það var mikil snilld. vorkenni eiginlega þeim sem mistu af goðinu live.

eftir tónleikana var haldið í nýnema partý matvælafræðinnar þar sem nýnemar voru nú í minnihluta. en fín stemning þar samt, enda frábærir eldri nemendur þar.

svo á sunnudaginn var svo lokaleikur okkar í reykjanesmótinu og var það við keflavík um fimmtasætið.

þetta var klárlega okkar besti leikur og vantaði aðeins 8 stig upp á sigurinn. ef við spilum svona í vetur þá eru allar leiðir opnar.

en leiðindar atvik átti sér stað í þeim leik og var það þegar ég var að fara í þetta fína sniðskot og lendi á löppinni á keflvíking með þeim afleiðingum að ökklinn minn er fokkt og get ég ekki stigið í hann.

kvöldið fór í sjónvarp og almennt chill og vona ég að ökklinn lagist á næstu tvem til þrem vikum.

þá er þetta komið gott af slóri og tími til kominn að halda áfram með eðlisefnafræði skiladæmin mín

þangað til næst vil ég vera búinn að lesa fleirri comment og að fleirri taki þátt í skoðannakönnunum....


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 20:57:13 / sandholt

úr hvaða myndum eru þessu setningar??

V:
This visage, no mere veneer of vanity, is it vestige of the vox populi, now vacant, vanished, as the once vital voice of the verisimilitude now venerates what they once vilified. However, this valorous visitation of a by-gone vexation, stands vivified, and has vowed to vanquish these venal and virulent vermin van-guarding vice and vouchsafing the violently vicious and voracious violation of volition. The only verdict is vengeance; a vendetta, held as a votive, not in vain, for the value and veracity of such shall one day vindicate the vigilant and the virtuous. Verily, this vichyssoise of verbiage veers most verbose vis-à-vis an introduction, and so it is my very good honor to meet you and you may call me V.

 

Chas:
Why would you do that when you know this isn't my car, John?
John:
I told you to move the car.
Chas:
Yeah, but if you'd told me you were going to toss a three-hundred pound mirror with a pissed-off demon, I would have moved it further!

 

Tony:
All I have in this world is my balls and my word, and I don't break 'em for no one. You understand?

 

Perry:
Look up idiot in the dictionary. You know what you'll find?
Harry:
A picture of me?
Perry:
No! The definition of idiot. Which you are!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 19:20:40 / sandholt

snilld...

Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og
taka vel til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu
og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent
bréfið sem í því var.


Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að
þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman. Ég geri
þetta svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að
undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur
þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En
það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til
hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það.
Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn
að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur. Hann
er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum
og ég er svo innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér það
að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg
af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta
á því og kókaíni og E-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn
finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo
skilið!! En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú
orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn
orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera. Einhvern
daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin
þín.


Þín dóttir Guðrún.


PS: Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita
að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu
skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir
mig að koma heim.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 22:11:06 / sandholt

smá um liðinn tíma og jafnvel ókomna...

nóg að gera í þessari blessaðari vinnu minni og er maður þar allavar alladaga frá átta til fimm á daginn og jafnvel með nokkrum yfirvinnutímum suma dagana.... en hvað um það þá á maður ekki að kvarta undan vinnu fyrr en maður er atvinnulaus...

ég var svo mikill klaufi um daginn að ég klessti á skylti og eyðinlegði bílinn minn. og ef tryggingarnar mindu skoða hann yrði hann skráður ónýtur... þannig er mál með vexti að í þessum áreksti þá brotnaði stuðarinn og lugtin hægra megin, en það var svo sem ekki það versta. ég braut nebbla vatnskassan líka og grindin beyglaðist. það fyrsta sem ég ætlaði að gera er að redda bara nýjum notuðum vatnskassa og skipta um hann og keyra svo bílinn í smá tíma og fá mér nýjan, en eftir að ég komst að því að svona vatnskassar eru vandfundnir þá ákvað ég bara að gera við hann sjálfur og viti menn haldiði ekki að mér hafi tekist það fyrir 1500 kall, geri aðrir betur...  keypti bara epoxy repair og vatnskassaþétti og vandamálið leyst.

svo það sem tekur við næstu vikur er rafting á laug í jökulsá eystri og svo bara próflærdómur, vinna og æfingar...

komið gott í bili, bifvélavirkinn kveður... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 18:04:05 / sandholt

Rock am Ring

ég var að koma heim af Rock am Ring og þvílík snild.

ég setti inn myndir á síðuna mína af þessari ferð sem ég tók með símanum mínum.

ég var að segja að stone sour hafi staðið uppúr ásamt korn að sjálfsögðu. það sem kom mér mest á óvart var keiser cheifs. ég hef svo sem ekkert á móti þeirri hljómsveit og fannst hún aldrei neitt mögnuð heldur en shitt hvað það var gaman á tónleikunum með þeim.

ég klárlega mæli með að fara á svona hátíðir en mætið snemma, því ég fékk ekki tjaldstæði á skikkalegum stað en það reddaðist fínt.

svona fyrst ég er að blogga yfir höfuð þá er mér ekki líkt annað en að kvarta yfir aðstæðum hér á landi því ég vill að ísland sé besta land í heimi, sem það er, en bara en betra. tvö mál eru á dagskrá núna og er það kurteisi í umferð, sem sagt að haanga ekki á vinstri (reyndar bara kurteisi yfir höfuð væri alveg fín líka) og svo er það bjórinn. ég gat keypt bjór allstaðar og þá meina ég alstaðar og ekki nóg með það hræ ódýrt. það sem fólk veit ekki er að það kostar jafn mikið að framleiða bjór og gos og ætti þvi að vara á sama verði og drukkið jafnt. ég vill geta farið í pulsuvagninn og fengið mér einn bjór með pulsunni minn og haldið áfram. og farið út í búð og keypt þetta á skít og ekkert.

nóg af þessu væli og aftur að aðalatriðinu og er það Rock am Ring. ég kem með betri ferðasögu seinna....


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 10:48:11 / sandholt

Bestu diskar allra tíma að mati GB

Topplistinn minn

 

First ég er einráður með þessas síðu ákvað ég að gera smá breytingu á listanum. Ég ákvað að færa Rammstein aðeins neðar á listan eða úr þriðja sæti í fimmta sæti. Einnig ákvað ég að setja Come What(ever) May með Stone Sour á listan í stað dauðarokks hljómsveitana, Between the Buried and me og Unearth.

 

En reglurnar eru enþá þannig að ég má bara velja einn disk frá hverri hjómsveit, því ef ég myndi ekki gera það þá væru eiginlega bara þrjár hljómsveitir þarna. en svona lítur hann út.

 

1. Deftones – Adrenaline

Hvað er hægt að segja annað en snild. Ég ákvað að kaupa þennan disk einn daginn eftir að jói benti mér á hann þegar hann var á 2 fyrri 2000 í skífunni. Og verð ég að segja að þetta eru ein bestu kaup sem ég ef gert yfir ævina.

 

2. System of a Down - System of a Down

bróðir minn kom með þennan disk með sér heim þegar hann kom heim frá svíþjóð þar sem hann var á körfubolta mót(hann skíttapaði öllum leikjunum). Ég var nú ekki lengi heillast af þessari hljómsveit og er þetta nú ein mín uppáhaldshæjómsveit.

 

 

3. Rage against the Machine – Evil Empire

þetta er firsti formlegi diskur sem ég eignaðist, ef undanskilin er pottþétt 1 og now viðbjóðurinn sem allir eiga. Er það stór hluti af því að þessi diskur er hér en ekki Rage(fyrsti diskurinn þeirra). Ég heyrði í þessari hljómsveit first hjá hrafnkeli vini mínum og bað ég um að fá fyrsta diskinn með þessari rage og fékk ég þennan og sé ég ekki eftir því.

 

3. KoRn – Life is Peachy

eins og þið sjáið kannski þá er ekkert nr.4 og er það útaf mikilli deilu sem ég hef haft innra með mér út af því hvort er betra korn eða Rage og ákvað ég að hafa þá bara saman í sæti.

Ég lenti reyndar í annari mikilli innri deilu með hvaða disk ég átti að velja með Korn. Því eins og þeir sem þekkja mig þá er þetta klárlega uppáhaldshljómsveitin mín. Sést kannksi á því að ég fór á báða tónleikana sem þeir héldu í laugadalshöllinni og að ég er að fara að sjá þá í þýskalandi því þeir eru að spila á Rock am Ring. Þá spyrja margir er þetta er uppáhaldshljómsveitinn þín afhverju er hún þá í fjórða sæti yfir diska. Það er einfallt því það er bara svo hrikalega erfitt að velja einn disk að það er fáránlegt. Ég valdi bara þennan disk út af því að ég veit ekki afhverju bara til að velja einhvern ef ég gæti valið alla þá væri þetta í fyrsta sæti. en sem einstaka diskur þá eru til diskar sem ég fíla meira.

 

5. Rammstein – Herzeleid

eins og flestir þekkja þá var Rammstein first spiluð í tvíhöfða um árið, eða þegar ég var að vinna í unglingavinnunni, og varð ég heillaður mjög fljótlega. Það tók mig nú samt allt of langan tíma að kaupa þennan forlára disk. En þegar kom að tónleikunum hér í laugadaslhöll þá var nú ekki aftur snúið og drullast var að kaupa allt safnið og hlustað var á stanlaust svo vikum skipti. Og eftir alla hlustunina þá stendur þessi diskur langt uppúr.

 

6. Slipknot – Vol. 3

slipknot er meinstreamasta þungarokkshjómsveit veraldar og án efa sú besta og alveg merkilegt hvað ég set þessa hjómsveit neðarlega. Með lög eins og wait and bleed, spit it out, surfacing, left behind people=shit sem verða útundan við þetta disk val  þá varð ég samt að velja vol.3 því þessi diskur er mun stabílli í gegn. Lög á borð við pulse of the maggots, vermilion og the blister exists.

 

7. Tool – Lateralus

tool uppgötvaði ég í gegnum gamla x-ið eftir að nokkrir þaðan fóru á hróaskeldu þar sem þeir voru að spila og voru svo heillaðir að þeir áttu varla til orð. Ég var nú ekkert helltekinn strax, en svo var ég að tala við einn kjötiðnaðarmannin sem var að leysa af í FK um tool og ákvað hann að skrifa þennan disk fyrir mig og viti menn, diskurinn fór ekki úr spilaranum í bílnum það sumarið. Efit þetta ákvað ég að kaupa fleirri diska með tool eins og Aenima og opiate. Og viti menn þetta verður bara betra með hverri hlustun. Svo voru þeir að gefa út diskinn 10,000 days og haldiði ekki að hann sé ekki snild líka. Og mæli ég hiklaust með þessari hljómsveit fyrir alla sem eru aðeins lengra komnir í rokkinu..

 

8. At The Drive-In – Relationship of Command

nú verð ég að taka soldið á mig. Ég man ekki hvar ég fékk þennan disk eða afherju en með hverri hlustun verður þessi diskur meiri og meiri snild. Eitthvað rámar mig samt í að kaupa þennan disk á 2 fyrir 2000 í skífunni út af one armed scissor sem var mikið búið að vera í spilun á x-inu árið 2000. Ég er half svektur að at the drive in hætti en ekki get ég verið óánægður með útkomuna því úr þessari frábæru hljómsveit komu tvær snildar hjómsveitir sem heita The Mars Volta og Sparta. Þetta er einnig rokk fyrir lengra komna.

 

9. Botnleðja – Fólk er fífl

ég er hafnfyrðingur þarf ég að segja meira?? Ekki nóg með það þá voru þeir í sama skóla og ég og heiðar söngvari var með dóttir vinkonu mömmu sem átti heima í sama stigagangi og ég. þetta var nóg fyrir mig að kaupa þennan disk og hlustaði á hann í ræmur á meðan ég dundaði mér í minesweeper í tölvunni því ég var að spila hann í geisladrifinu í tölvinn, því það var ekki pláss á tölvum til að setja heilan disk í tölvur á þeim tíma.

 

10. Stone sour – Come What(ever) May

bróðir minn bað mig um að dawnloada þessum disk um daginn því hann hefði heyrt lag á popp tv með þessari hljómsveit, lagið Through Glass. Ég hef verið að hlusta soldið á þennan disk undanfarið og hef ég komist að því hversu mikil snild hún er. Ok þetta er soldið mainstream og soldið stelpu rock, sem sagt rólegt og yfirvegað með melískum öskrum en það sem vegur uppá móti er söngvarinn er Cory sem er einnig söngvarinn í Slipknot sem gefur þessu gott gildi á cool kvarðanum að mínu mati. Svona fyrir utan það þá er söngurinn einstakur á tímabili með góðu gítarriffi. Ég klárlega mæli með þessum disk fyrir nýrokkara og fyrri diska hljómsveitarinnar líka Gt inside the Sickness fyrir þá sem fíla þessa hljómsveit því þá sína þeir aðeins þyngri hlið á fleirri köflum.

 

þeir diskar sem voru bublandi kraumandi undir voru aðalega þessir tveir diskar:

Unearth – the Oncoming Storm og Between the buried and me – Alaska

með árunum hefur tónlista smekkurinn minn þróast aðeins í harðari kanntinn og eru næstu tvær hljómsveitir merki um það.

Ég gat varla ákveði hvor ætti meira skilið að vera þarna þannig að ég ákvað að setja þær báðar bara. Ég get ekki sagt mikið um þessar hjómsveitir annað en það að ég ákvaðað downloada þessum diskum í firsta lagi af því að ég fékk smá demo af  unearth og að valli í dordingull.com valdi þennan disk sem disk ársins.

Þessir diskar eru ekki bara öskur heldur svo mikil tónlista snild. Hraður og ákveðinn taktur sem maður tínir sér inní. Mæli ég klárlega með fyrir þá sem eru efins með hvort þeir eigi að fara í metalinn eða bara að halda sig við rokkið.

 

Einnig eru þessir diskar ekki langt frá þessum lista:

Og já ég veit að Metallica er ekki þarna en ég hef aldrei verið mjög mikill fan en samt mjög góð hljómsveit. Einnig væri ég til í að hafa Dirt með Alice in Chains ásamt Fat of the Land með The Prodigy, Nevermind með Nirvana, Coal Chamber og Ill nino.


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:15:24 / sandholt

borðum rétt...

ég var t.d. á morgunverðafundi í morgun í nordica hótel um skammtastærðir og hollustu íslendinga, sem var bara ansi áhugavert... það sem kom út úr þessu er að það þarf að bæta mataræði í grunnskólum landsins.

ég tel að besta leiðin til að koma landinu enþá lengra er að born landsins borði rétt. því ef börn borða rétt í skóla og læra að borða rétt þá leiðir það á heimili og foreldrarnir fara að borða rétt með þeim.

það er líka staðreynd að krakkar sem borða rétt heldur mikllu betur athygli í tíma og lærir þ.a.l. mun betur. og aldrei hefur kunnátta skaðað neinn.

einnig hefur komið í ljós að það minnkar líkur á að krakkar þjáist af röskunum eins og athyglisbrest eða ofvirkni ef það borðar rétt. ég er nokkuð viss að það vill enginn að krakkinn sinn sé með röskun.

þannig að lykillin að hammingjusömu og farsælu lífi er að borða rétt og kvet ég alla að taka sig á í mataræðinu og bera hollan mat á borð hjá börnum því þau eru framtíðin...

svo væri ég alveg til í að fleirri myndu taka þátt í smá rökræðum hér fyrst svo margir eru að lesa þetta. ég er alveg viss um að allir hugsi eitthvað með sér eftir lesturinn hér því allir hafa skoðun á því sem ég skrifa hér...

p.s. ég er með stækkun álversins... rök koma seinna... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 18:43:04 / sandholt

trúlaysingi

mig finnst það alveg merkilegt að það sé enþá fólk þarna úti sem enþá trúir á guð og svoleiðis bull. sú hugmynd að það sé eitthver persóna að stjórna þessu öllu er fáránegt. allt í lagi að trúa á að náttúran stjórni en að lifa eftir einhverri skáldsögu er mér alveg forviða...

ég get virkilega ekki trúað því að fólk sem virkilega hefur lesið biblíuna fari eftir henni. það eru svo miklar mótsagnir í henni að það er ekki til orð yfir það...

eins og til dæmis samkynhneigð. hún er fordæmd í biblíunni en samt segir hún líka að allir séu jafnir og að maður á að elska náungan eins og maður gerir sjálfan sig.

ég vill fá einhverja rök með þessari vitleysu og að sjálfsögðu líka frá þeim sem eru sammála mér...

nokkur dæmi um fávisku trúarinnar... 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Heimsóknir
Í dag:  22  Alls: 57210
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Bankinn minn
myndasíðan mín